Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

mánudagur, ágúst 15, 2005

::Kvennareið og læti bara::

Jæja já... Þetta vara alveg rosaleg helgi úff... Á föstudagskvöldið fórum við ríðandi frá Hvammstanga og út að Reykjum, sem var voðalega gaman.. smá sull í leiðinni og svona. Svo á Laugardeginum þá var aðal geimið sko.... The kvennareið jú sí... Djöfull var það nú gaman, Unnur Sigrún fór gjörsamlega á kostum. Sumar drukku kanski meira en aðrar, og líklega var ég ein af þeim sem drukku meira, en engin slys urðu þó. Svo um kvöldið var ekki um neitt annað að ræða en að skella sér á ball í Víðihlíð. Helvíti fínt ball bara, ég sleppti því meira að segja að drekka frá mér allt vit í þetta skiptið(sem er mjög fínt), og fann varla fyrir þynnku á sunnudeginum... Djös' snilld. En svo í gærkvöldi þá fórum við pápi á Ægissíðuna til að ná í tryppið sem ég var að selja, það gekk nú ekki snuðrulaust fyrir sig. Grenjandi rigning, þoka, rok og allt of dimmt. En tókst allt saman að lokum þó... tryppið fór með hestaflutningabíl í dag, sem er mjög sorglegt... hefði ekki átt að selja hana Hendingu "mína". Ég heiti því að ég ætla ALDREI aftur að selja eitthvað af hrossunum mínum.... það gengur ekki... það er allt of erfitt..
jæja over and out....

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim