Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

laugardagur, ágúst 20, 2005

::Einn góður ::

Kona nokkur var að versla í Bónus-verslun í hverfinu. Hún var búin að setja 3 lítra af létt mjólk í körfuna ásamt 1 eggjabakka með 10 eggjum, 1/2 líter af appelsínusafa, 1 höfuð af kínakáli, kaffipakka og bréfi af beikoni. Ölvaður maður fyrir aftan hana í röðinni fylgdist með þegar hún raðaði þessum hlutum á færibandið við kassann. Þegar kassadaman tók til að lesa strikamerkin inn sagði drukkni maðurinn hæglátlega:"Þú ert örugglega einhleyp"! Konunni gramdist þessi ummæli drukkna mannsinsen jafnframt fannst henni athugasemdin skondin þar sem það var vissulega rétt, hún var einhleyp. Hún virti fyrir sér þessa sex hluti á bandinu ogfurðaði sig á hvernig í ósköpunum hann gæti komið með svona fullyrðingu afþessum ósköp venjulegu innkaupum. Forvitnin varð henni um megn svo hún sagði: " Þetta er vissulega hárrétt hjá þér. Hvernig í ósköpunum geturðu séð það??" . . .og drukkni maðurinn svaraði: . . ."af því að þú ert ljót"!!!


0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim