Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

laugardagur, mars 24, 2007

Jæja gott fólk ...

Dagurinn í dag ætlaði barasta ekki að líða hjá. Var ekki að nenna að vera í vinnunni, það var furðu lítið að gera í búðinni. . . úff. . . púff! Var líka með augun á klukkunni mest allan tímann! Hmmm... fékk reyndar að fara klukkan 18:30 sökum þess að ég var að fara að aðstoða við að mála krakkana í 1-6 bekk fyrir árshátíðina. Það gekk fínt bara. En svo eftir árshátíðina var ball fyrir krakkana, og Sara vildi fá að fara, þannig að ég fylgdi auðvitað með. Þetta var frekar fyndið fannst mér...hehehe... að fylgjast með krökkunum þarna. En ég segi nú bara HALLÓ,HALLÓ..... Hvað er með klæðnaðinn á sumum stelpunum í GRUNNSKÓLANUM?? Kræst sumar voru í pilsi sem náði varla niður fyrir rass, bol sem var svo fleginn að það hálfa væri nóg og svo á risa háum hælum......kanski er ég gleymin.... en mig minnir einhvern vegin, að svona hafi þetta ekki verið í þá gömlu góðu daga þegar ég var á þessum aldri. Minnir ykkur eitthvað annað kanski..... kræst. En allavegana fórum við mæðgur heim frekar snemma..Sara mín er ekkert fyrir svona hávaða....sjúkket... þannig að við vorum bara í rúman klukkutíma. Annars kveð ég í bili, og fullyrði hér og nú... að hún dóttir mín mun ekki fá að klæða sig svona takk fyrir... kanski er ég tepra... en það bara verður ALLS EKKI Í BOÐI!!!!!!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim