Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

fimmtudagur, mars 15, 2007

Veikindi á heimilinu...úff

Jæja... ekki er ég búin að vera mikið að vinna í dag. Sara mín er lasin... jebb,jebb... það ýlir í henni þegar hún er sofandi vegna þess að hún er bara svo stífluð greyið. Og svo er hún líka með hita. Ég mætti nú samt í vinnuna klukkan 08:00 til þess að ganga frá mjólkurvörunum svo að það mundi ekki lenda á einhverjum öðrum, og fór svo heim að því loknu. Annars er ég bara að fara að dunda mér við það að pakka niður, ég ætla að taka mér góðann tíma í það vegna þess að nú verður farið í það að henda því sem ALDREI er notað og svoleiðis.... sem sagt afar spennandi!!! Hef reyndar ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera við búslóðina mína..... en það reddast einhvernvegin.

Obbobbobbb.... nú er að koma að soundtest fyrir söngvarakeppnina, hvernig ætli það farai nú..... iss þetta verður pís of keik..... Annars er svo sem ekkert að frétta í bili......

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim