Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

mánudagur, nóvember 13, 2006

:: Sundmóti lokið ::

Já,já... svona er þetta bara... Maður er víst foreldri og verður að standa sig í stykkinu. Ég fór sem sagt á sundmót í Borganesi á laugardaginn. Tók með mér tvö auka börn og var með FULLAN BÍL af farangri. Árangurinn hjá krökkunum á mótinu var alveg frábær, og við vorum lang duglegust að hvetja okkar krakka. Afturelding var með töluvert fleiri liðsmenn... en við tókum þau í nefið í hvatningunni sko! Flemming var mættur sem ræsir og Hafdís Baldurs sem dómari. Þetta var bara mjög fínt, og áhugaverð lífsreynsla líka. Það var gist í skólanum í Borganesi, og það gekk misjafnlega vel að sofna fyrir skarkala og látum. Mótið var búið um hádegi á sunnudeginum, og skelltu Húnarnir sér í pizzu-veislu í Hyrnunni. En best af öllu var líklega a' koma heim í sæluna bara.

eníveij.....ætla að fara að skella mér í heimilisverkin og svo að tezta saumavélina mína.... spennó!

Over and out... Hulda töff,töff,töff... og svaka hot stuff

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim