Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

miðvikudagur, september 13, 2006

::Göngur á næsta leiti::

Jebbsí-pepsí... göngur á næsta laugardag!!! Ég verð að viðurkenna það að ég er soldið kvíðin. Hef aldrei farið ein í göngur. Ókei... maður er svo sem aldrei EINN í göngum... en það er skemmtilegra að hafa einhvern til að rölta með sko! Frekar langt í næsta mann... en ég fer samt í göngur. Það er BARA gaman að reka þessar Sheep til byggða. Væri samt ekkert á móti því að hún systir mín mundi bara drífa sig með í göngur!!!!! HAAA ALDÍS!!!

En skítt með það... ball í reiðhöllinni á Blönduósi... hvað segið þið um það! Ekki er enn vitað hvað á að kosta inn, en það er líka baa seinni tíma vandamál. Ég segi bara allir að mæta í lopapeysu..... hafa alvöru fíling í'essu o'sonna bara. Og það er hin frábæra dúndur-hljómsveit...ÚLRIK sem að heldur uppi magnaðri stemmu þarna í reiðhöllinni.

Mig vantar bókina " ÍSLENSKA 1 " jájá það e rétt lesið..... svona er þetta bara þegar að maður drullast ekki til að byrja á því að klára skólann áður en maður fer að gera allt "hitt". Þannig að ef að einhver lumar á henni... þá væri ég mjög svo til í að fá hana lánaða. Nerd







0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim