Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

::Þetta reddast allt saman::

Nú er ég loksins búin að finna lög til að spila. Það var líka kominn tími til, aðeins 2 dagar til stefnu. Þá er það bara að æfa sig. Þetta reddast allt að lokum. Vona bara að ég eigi ekki eftir að ruglast of mikið á föstudaginn samt.

En hvað er annars planið hjá ykkur um helgina? Jah... ég er mikið að spá í að eyða meiri hluta helgarinnar út í sveit. Tryppin eru orðin frekar vel bólstruð, og fara að þurfa hreyfingu. Kanski að ég geti fengið pabba til að koma með mér, efast um að ég ráði við þau ein svona til að byrja með. Hann er svo sterkur sko... hann pabbi minn

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim