Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

föstudagur, ágúst 18, 2006

::Helgin bara komin::

Þá er bara komin helgi.. úff hvað þetta er nú fljótt að líða. En í gær ætlaði ég mér að gera svo svakalega mikið, en það eina sem að ég gerði var að þvo þvott, elda, vaska upp eftir matinn, ganga frá þvotti og prjóna. Er nefninlega að prjóna lopapeysu á ónefndan aðila. Erum reyndar ekki friends lengur, en ég sagðist ætla að prjóna á hann peysu, og ég SKAL klára þessa blessuðu peysu. Á "bara" eftir að lengja ermarnar aðeins, festa ermarnar við bolinn, og prjóna munstrið. Vonast til að geta hér um bil klárað hana um helgina. En þá verð ég líka að vera dugleg!!!

En hvað á svo að gera um helgina? Sumir fara á menningarnótt og sumir ætla að keppa á hestamótinu upp í hvammi, og hinir??? Jah.. ég ætla allavegana að vera róleg bara.. sitja heima og prjóna, kíkja í sund með prinsessuna mína. Svo er sundfélagið með grillveislu upp í hvammi á sunnudaginn, þannig að ég ætla mér að gera eitthvað gagn þar.

Að öðrum málum... þvottavélin mín er eitthvað að ergja mig þessa dagana... á það til að taka ekki við þvottaefninu. Ah, já og svo er alveg ótrúlegt hvað ljósaperurnar eru duglegar að springa hjá mér þessa dagana. Kaupa ljósaperur í dag Hulda .... og ekki gleyma því!

Untill next time...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim