Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

::Peningaplokk og ekkert annað::

Ég get svo svarið fyrir það... Ég fór til tannlæknis í gær.. það eina sem að maðurinn gerði var að taka tvær myndir og skoða upp í kjaftinn á mér.(sem að er í betra ásigkomulagi heldur en ég hélt) Og hvað lét hann mig borga fyrir það...... hvorki meira né minna en 7,500 krónur. Oj... mér finnst það of mikið fyrir svona smá skoðun. Fór til tannlæknis í borg óttans fyrir ekki svo löngu, og hann gerði við eina tönn, tók tvær myndir, hreinsaði tannstein og.... deyfði auðvitað líka, og furðulegt en satt að þá kostaði það mig einungis 6,000 kall. Hugsa að ég keyri frekar suður til að fara til tannlæknis heldur en að fara til peningaplokkarans hérna.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim