Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

;;Garðurinn tekinn í nefið;;

Jájá... gærdagurinn var alveg ágætur í vinnunni, fyrir utan svakalega þungt loft þarna inni. Ekki það þægilegasta sko. Heyrðu, svo var maður bara búinn að vinna klukka. 16:30 sem að er bara lúxus. Þá tók mömmustarfið við. Fór heim, sagði mömmu að láta Söru og Stefaníu bara rölta yfir. Setti kjúlla í ofninn, setti í þvottavélina, sauð hrísgrjón, gerði sósu, blablabla... sem sagt gómsætur matur. Aldís systir kom í mat líka. Svo fórum við allar upp á Ásbrautina og skelltum okkur í garðavinnu, sem að stóð til rúmlega ellefu. Trén voru klippt og söguð og snyrt. Farið með allt draslið á haugana sem átti ekki að vera þarna. Og haldiði ekki bara að hann pabbi minn hafi mætt þarna með svona gamaldags orf og ljá.... þetta var víst algjört drasl, en samt skemmtilegt að sjá það.

Heyriði nú mig... svo fór ég í hádegismat til múttu áðan, og hvað gerðist.. nú já... ég dottaði í smá stund og það á nú ekki að vera hægt því að ég hef bara 30 mínútur í mat. En jæja svona er maður..

sjáumst

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim