Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

föstudagur, apríl 07, 2006

::Það er nú góða veðrið::

Það er nú meira hvað þetta er skemmtilegt veður þessa dagana!!! Í gær þá tókst mér að festa mig tvisvar sinnum..... ó já... fyrst í gærmorgun þegar ég var að fara með Söru í skólann, og það var nú bara í bílastæðinu heima.. kræst! Og svo á miðju sjoppu planinu þegar að ég var að fara að sækja Söru í skólann... magnað alveg hreint!

En hvað um það..... ég festi mig líka í morgun!!ARG OG GARG!!

Vitiði bara hvað... það eru komin tvö lítil og sæt lömb í sveitinni..... get ekki beðið eftir að fara á Ægissíðuna og kíkja á þetta!
Sííííjahh

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim