Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

laugardagur, desember 10, 2005

::jamm og jæja::

Jæja, þá er alveg ágætis degi að ljúka, eða er reyndar lokið as we speak heheh. Við vorum búin að vinna klukkan 11:55 í Mellllleyri í dag. Djös... snilld, bosssarnir misreiknuðu sig víst eitthvað aðeins. En mér fannst það bara alveg indælt.

Jebbs, en það var líka innanfélagsmót hjá Húnunum í dag. Það var bara voða gaman. skvísan mín var að synda, og stóð sig eins og hetja. Litlu krílin syntu 50m skrið/fætur - 50m bak/fætur og 50m bringu/fætur og fengu kanski ca 10 - 15 mín hvíld á milli. Jiiiiiiiiiii hvað ég er stolt af Söru skvísu... Hún er með næturgest núna. hana Emilíu, og maður bara veit varla af þeim, þær eru svo góðar saman.

En hvað um það... ég er enn bara að fretast áfram í því að hætta að reykja. Þetta er kanski ekki eins ertfitt og ég hélt að það yrði... en auðvelt er það ALLS EKKI. En það er bara að bíta á jaxlinn.

Ég var að vinna í sjúppen áðan með Helgunni, það var EKKERT að gera.... nema að hlusta á jólalög og þrífa, spjalla og hafa það bara gaman. Nenni ekki að drita meira í dag síjah..

Og kvittiði svo í the géstbúkk takk fér

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim