Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

miðvikudagur, ágúst 31, 2005

::Ég get svo svarið fyrir það::

Hún Rósa mín var svo elskuleg að koma í heimsókn áðan, akkurat þegar að lokaþátturinn af Kevin Hill var í gangi. Neineineineinei, og hvernig haldið þið að sá þáttur hafi endað???? Já einmitt...ILLA. Það var bara táraflóð og læti hjá mér. Heyrðu... svo kemur næsti þáttur, og hvað..... haldiði ekki barasta að sjúklingurinn sem var 10 ára strákur deyji ekki bara í aðgerðinni í þættinum????? Hún er óheillakráka fyrir góða þætti, ég get svo svarið fyrir það!!! Og Ég bannaði henni að koma þegar að það eru góðir þættir í Tívíinu, mér finnst miklu skemmtilegra að hafa svona happy ending. Rósa var nefninlega líka hjá mér þegar að lokaþátturinn af NCIS var.... og hvað gerðist þá....... hmmmmmm... hann endaði ILLA. En annars ertu alltaf velkomin Rósa mín , ... nema þegar það eru góðir þættir í sjónvarpinu!!! over and out

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim