Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

laugardagur, ágúst 20, 2005

::Nú er þetta allt að skella á::

Haldið þið ekki bara að hún Sara Líf þessi elska, sé ekki barasta að fara að byrja í skóla á þriðjudaginn... ómægad... er ekki alveg viss um að ég hafi verið búin að skrá mig í þennan klúbb. En maður verður víst að takast á við þessa skólagöngu eins og allt hitt.

Já og svo er það annað... ég ætla að reyna að ná sambandi við hann Mikka á mánudaginn, og athuga hvort hann geti komið mér og Jónu að í einkaþjálfun.. já, það er kominn tími á að losa sig við þessi skrilljón aukakíló sem að maður er alltaf að burðast með.

Já og haldiði ekki bara að dóttir mín hafi sagt "oh my goodness" um daginn, ég meina... húb er 6 ára. bara eitt enn... Aldís mín ... fyrst að ég er svona mikill óviti á tölvur, hvernig væri þá að græja fyrir mig gestabók hérna..... nei ég bara svona spyr.....

over and out.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim