Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

mánudagur, ágúst 21, 2006

::Sól og blíða::

Talandi um að kafna úr hita... úff. Hitinn í gær var náttúrulega bara svakalegur. Ég var bara heima að þrífa(valdi alveg besta daginn í það), Sara og Arndís úti í garði á sundbolum bara. Svo kom Aldís og var að tala um að hún ætlaði að fara upp í hvamm með teppi og svona, og við skelltum okkur bara með. Þetta var svona lautarferð eiginlega, voða notarlegt. Tók með kex og svala fyrir stelpurnar. Þær voru að vaða í ánni og skemmtu sér konunglega við það. Svo var farið í frisbí og þær gerðu sitt besta í tennis líka. Síðan var sundfélagið með sína árlegu grillveislu í þjónustuhúsinu upp í hvammi, það voru ekki ýkja margir sem að mættu, en það var glatt á hjalla. Ég sólbrann smá, en Sara virðist hafa sloppið við það... sem betur fer. En nú er maður bara mættur til vinnu, og vonar að það verði ekki kæfandi hiti hérna eftir hádegi.

síííjah...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim