Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

föstudagur, ágúst 25, 2006

::Today is the day::

Já , það er í dag sem að ég á að fara að spila á klarinettið. Fokkit´,sjétturinn og allt það sem því fylgir. Heh ... Er sum sé ekki búin að vera rosalega öflug í að æfa mig.(Big mistake) Sigrún er búinað ákveða að gera grín að mér þegar að ég er að spila(vonandi fer hún ekki að geyfla sig). Ég er samt búin að ákveða það ... að ég muni rúlla þessu upp! Ég er líka búin að ákveða það að ég ætla ekki að ruglast meira en tvisvar(því að það væri glatað).


En nú er annars að koma helgi, og minns ætlar í sveitina á morgun eins og áður hefur komið fram. Svo er hugsunin að skrá sig í fjarnám hjá f.á. í dag. Var að pæla í að taka einhver 2 - 3 fög... en ákvað að fara bara í eitt fag, og bæta frekar við það eftir áramótin.

Svo fer að líða að göngum fyrir Þverá-rétt. Ég mun fara arkandi að venju, og er að vonast til þess að hún Aldís muni hafa tíma til að skella sér með. Ef hún beilar á því, þá vantar mig staðgengil..... þannig að ef að einhver vill bjóða sig fram... do it here. Og munið... það er alltaf gaman að ganga á fjöll, það er afrek.

Over and out...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim