Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

:: KOMIN HEIM Í SÆLUNA ::

Þá er mín bara komin heim í sæluna. Þetta var mikil, en misgóð lífsreynsla segi ég nú bara. Rosalegt rok rassgat er þetta blessaða kjalarnes segi ég nú bara. Og haldiði ekki bara að ég hafi verið látin vera trimmstjóri þarna á Vík. Ég af öllum... crapp... við skulum bara segja að ég hafi verið mis dugleg við að sinna því djobbi. Ég sé bara ekkert hressandi við það að fara út að trimma eða bara labba í grenjandi rigningu og roki. Hah.... ég spilaði meira að segja félagsvist með köllunum þarna og.... haldiði ekki bara að ég hafi unnið... húrra fyrir mér. Það voru reyndar engin verðlaun, en ég vann samt. Og hana nú. Hvernig væri að fara að taka upp á því að spila félagsvist svona einu sinni í mánuði eða eitthvað. Þetta er bara mjög gaman sko.
Ég var með frábæran herbergisfélaga upp á Vík sem að hjálpaði tímanum að líða hraðar. Hún er töff,töff,töff.. og svaka hot stuff! Kynntist mikið af frábæru fólki og blablabla.... nóg um það!
Kom sem sagt heim í gærkvöldi, fór í sveitina í dag í bjúgnagerð (oj) og fór svo heim til múttu ok skellti í fimm stykki kökur. Er úber þreytt bara og bið að heilsa í bili.....

Over and out.. Hulda sæta satt!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim