Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

laugardagur, desember 30, 2006

;; Jahá... Gleðilega hátíð allir ;;

Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er búin að vera alveg hund-léleg við að blogga. Tölvan mín er með mjög alvarlegan sjúkdóm sem að kallast "VIRKAR EKKI" og er greyið hér um bil við dauðans dyr. Maður skreppur kanski bara til mömmu gömlu í tölvuna þar, til að henda inn nokkrum línum af og til. En annars er það að frétta síðan síðast, að ég er komin með vinnu í stórversluninni KVH. Það er svei mér þá barasta alveg ágætt að vera þar, og tíminn líður mun hraðar en ég bjóst við, og er ég nú orðin mjólkurkælis-gellan á staðnum. Crapp ... gaurarnir eru mættir á svæðið, þannig að ég býst við því að þurfa að fara að koma mér af stað í vörutalningu eina ferðina enn. Geggjað stuð.... við vorum að til 06:00 í morgun og erum að fara að hella okkur í restina núna eftir smá tíma. mmm... Jólin voru Gleðileg og fín og sonna... ég tók það að mér að spila á klarinettið í 2 messum með henni Ellu (tón), það heppnaðist misjafnlega vel. Skellti mér á einn fínan fund á jóladag, það var bara kúl. Verð bara heima um áramótin, skjóta upp með familíunni og sonna. Það er allavegana ekki planið að gera neitt annað eins og er . Meira síðar ... (vonandi)... En ég er að lesa alveg snilldar-bók.... "He's just not that into you" mæli eindregið með henni.... love you all (almost)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim