Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

mánudagur, desember 24, 2007

** Aðfangadagur**




Gleðileg Jól allir..... Ég veit satt að segja ekki alveg hvað varð um jólaskapið, allavegana er ég ekki búin að finna það ennþá. Ég er allavegana að reyna að koma mér í einhvern jóla-fílíng hérna. Við mæðgur erum búnar að fara í jólabaðið og sjæna okkur. Búið að pakka inn öllum gjöfum og sonna. Jólaskapið hlýtur að fara að koma. Veit ekki alveg hvort ég skelli mér í messu þetta árið, ekki alveg í stuði til þess. Annars fannst mér jólasveinarnir sem að komu hingað áðan ekkert of sprækir.... veit ekki alveg hvað er að gerast með þá.... jólasveinana sko. Hundurinn er búinn að vera að tapa sér yfir öllum jólakortunum sem að fljúga inn um bréfalúguna... Það vill nefninlega svo skemmtilega til að hann þolir ekki póstinn... hehe. Annars er ég að fara að spila trivial við Söru sætu og Dísu skvísu.... hafið það sem allra best um hátíðarnar ... hittumst heil!!!!!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim