Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

miðvikudagur, apríl 04, 2007

::Var að fara yfir um::

Ég get svo svarið fyrir það!!! Það var án alls gríns...BRJÁLAÐ að gera í búðinni í dag. Úff, mín var nú ekki alveg að höndla þetta. Jebb,jebb... maður verður nú að passa geðheilsuna... hún hefur ekki verið upp á sitt besta hjá mér síðustu daga. Eru allir að fara á ball eða hvað? Mér er að heyrast það... jah, ég segi bara góða skemmtun! Dagskráin hjá mér um páskana hljóðar svo...

- skírdagur - pakka niður á skrilljón....
- föstudagurinn langi - pakka meira niður, og lesa passíusálma í kirkjuhvammi...
- laugardagur - vinna og helst pakka meira niður, æfing hjá Sveinu...
- páskadagur - flytja og spila í messu...
- annar í páskum - spila í fermingarmessu og helst chilla bara.

Ekki mikið páskafrí þetta hmmmmmm.......

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim