Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

fimmtudagur, mars 29, 2007

::Hvað skal gera::

Jájá... ég er búin að vera að þykjast kunna eitthvað á heimasíðugerð... en nei alls ekki!!! Og ef að einhver er að spá í það hver gerði þessa síðu.... þá var það hún systir mín. Já já... ekki kann ég á þetta. Var eitthvað að fikta við þetta á hinum ýmsu stöðum, og ekki gekk það nú. Ég hugsa að ég muni nú bara halda mig við þessa síðu og hætta þessu rugli. En að öðru... Sara fór suður í dag og kemur ekki aftur fyrr en á sunnudaginn. Hvað gerir maður þá??? Það er svo sem nóg af hlutum sem ég á eftir að gera ... til dæmis... pakka niður draslinu í íbúðinni(nei ég er ekki búin að því)... Fara í hesthúsið(ekki búin að vera of dugleg við það) grúska í stærðfræðinni(hef bara gott af því sko) og....... já það er alltaf hægt að finna sér eitthvað til dundurs svo sem.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim