::Komin í Bæjarleyfi::
Jájá... þá er maður komin í smá bæjarleyfi. Það er nú ekki langt, aðeins tveir dagar. Kom út af Vogi í gær, og þar var fínt að vera. Ofboðslega góður hópur af fólki þarna. Maður er búin að læra ýmislegt þar, og svo er ég að fara á Vík á morgun, þar sem að ég fer í eftir-meðferð. Ég gerðist reyndar svo svakalega frökk og spurði ráðgjafann minn hvort að ég mætti ekki bara fara upp á Staðarfell...hehe.... honum fannst ég nú bara ekkert fyndin. Það vill nefninlega svo skemmtilega til, að á Staðarfelli eru bara strákar. Mér fannst ég bara ágætlega fyndin samt sko... að reyna að fá að komast þangað.
Ég er ekki búin að vera að standa mig í fjarnáminu, en ég ætla að reyna að vinna þetta allt saman upp á Vík. Vonandi tekst það því að ekki er þetta blessaða fjarnám ókeypis!!!
Jæja... ég vildi nú bara leyfa ykkur að frétta aðeins af mér. Bið bara að heilsa.
Over and out....................................