::Lélegur bloggari::
Það er alveg rétt... ég er búin að vera ótrúlega léleg við bloggið undanfarið. Ég er reyndar búin að vera frekar léleg við margt undanfarið, en það er allt í vinnslu og vonandi fer þetta allt að komast í lag bara. Það er ekki mikið annað um þetta að segja svo sem. Hlakka til að gera eitthvað skemmtilegt í sumar og sonna. Fara í bústað eða útilegu og bara hafa gaman í góðra vina hópi. Hmmm..... ég er búin að skrá mig í fjarnám í sumar, tek reyndar bara 2 fög á sumarönninni, vegna þess að ég tek líka 1.stigið í þjálfaranum í sumar. Þetta er allt saman voða spennandi bara.
Over and out í bili
Over and out í bili