Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

fimmtudagur, apríl 05, 2007

::Designated driver::

Jebbs... ég var fengin til þess að keyra á ball í Víðihlíð í gær, gegn vægu gjaldi.(þeir urðu að borga mig inn á ballið sko) Þeir voru stilltirí bílnum þessar elskur. Reyndar "sofnuðu" sumir á leiðinni heim, og það var bara "kúristemning" í gangi fannst mér. híhíhí... En hvað er eiginlega málið??? Alltaf stóð ég í þeiri trú að stelpur væru lengi að koma sér á ball..... en....ojojojojojojojoj.... strákar eru alveg skelfilega lengi að koma sér af stað! Sjæsa....var ekki viss um að við yrðum komin fyrr en klukkan tvö á ballið eða eitthvað svoleiðis. Við vorum reyndar komin upp úr eitt held ég. En hvernig er það annars.? Þegar að fólk fer á ball.... þá hlýtur það að redda sér fari á ballið og heim aftur... er það ekki annars??? Jah... þannig var það yfirleitt gert í dennnnn!! Allt í einu fylltist rassinn af fólki sem að kom ekki í honum á ballið, og vildi fá far heim... en ég vonda,vonda... vildi bara alls ekki taka of mikið af fólki í bílinn þannig að ég er eflaust ekki sú vinsælasta fyrir vikið. En það verður bara að hafa það, lög eru lög! Hvernig skemmti fólk sér annars á balli?

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim