Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

fimmtudagur, apríl 05, 2007

::Litlu hlutirnir skipta máli::

Í dag fór ég á Garðaveginn og var að pakka niður allskonar drasli. Váááá hvað það er ótrúlegt þegar að maður gerir sér grein fyrir því hvað maður er búinn að vera að safna að sér mikið af óþarfa drasli... úff segi ég nú bara. Jomms, og þá er ekki um neitt annað að ræða en að fara að henda einhverju af þessu rusli. Til dæmis er ég mikið að spá í að losa mig við svarta hornsófann sem að ég fékk gefins frá Lullu og Hring, hef bara ekkert með hann að gera og tilgangslaust að geyma hann...jomms, honum verður pottþétt hent!!! Já, það er líka ótrúlegt hvað litlu hlutirnir skipta mann miklu máli.. ég og Aldís siss tókum smá syrpu í spilamennsku í dag, og var það voða gaman. Þetta er bara málið!!!! Að eyða tíma í að gera eitthvað svona... taka í spil með Aldísi... styrkja systraböndin og sonna! Annars er ég bara í ágætis gír í dag... og svo eru það bara passíusálmarnir á morgun..jebbjebb...það verður bara viðbót í lífsreynslusafnið.. alltaf gott að geta gefið aðeins af sér!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim