Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

mánudagur, apríl 09, 2007

::Falinn fjársjóður::

Hmmmm.... já hvað ætli ég sé búin að leita lengi að peningaveskinu mínu sem að innihélt ökuskírtenið mitt og kortið mitt og péninga og smokka og......... ha??? Nei engir smokkar voru þar... bull er þetta!! Jú ... eg er búin að vera að leita að því síðan ég kom úr meðferð. Og það eru hvað???? 1,2,3,4....... fimm mánuðir síðan það var ... wow kúl! En allavegana að þá var ég búin að snúa öllu við heima hjá mér og gera dauðaleit í bílnum og ég veit ekki hvað og hvað! Búin að spurja stelpurnar hvort að ég gæti hafa skilið veskið eftir hjá þeim og sonna... en engin kannaðist nú við það. Og ekki er það nú skrítið, því að veskið kom í leitirnar í dag ! Og hvar var það?????? ÞAÐ VAR ALLAN TÍMANN HEIMA HJÁ MÉR!!! Ég hafði falið það innan í einhverju sængurveri inn í skáp í einu af partýunum mínum..... Ég var alltaf að reyna að passa upp á að týna ekki veskinu mínu þegar að ég var drukkin, svo að ég faldi það alltaf. En ég var alltaf orðin svo drukkin þegar að ég faldi það .... að daginn eftir hafði ég ekki hugmynd um hvar það var..... Þetta kalla ég sko "Falinn fjársjóð" hehehe

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim