Hulduheimur

Kvenmenn eru æðra kynið!!!

laugardagur, apríl 21, 2007

::Ðakk.... ég þoli ekki flutninga::

Ég get svo svarið fyrir það......... Það er alveg ótrúlegt hvað maður sankar að sér miklu drasli... úff... vonandi læri ég eitthvað af þessu, og hef bara allra helstu nauðsynjar á heimilinu mínu... sem er nú "hótel mamma". Ég á ekki eftir að klára neitt svakalega mikið í íbúðinni, en það er samt eitthvað svo yfirþyrmandi. Núna ætla ég að fara að skella mér í bað..."I NEED IT"... Fara svo aftur niður í íbúð og fara að þrífa gluggana og eldhúsinnréttinguna. Ég er nú þegar búin að þrífa meiri hlutann af blessuðu veggjunum...fjúff!!! En annars skal þetta klárast á morgun... annað er bara ekki í boði!

En hvernig er annars stemmningin fyrir söngvarakeppninni næstu helgi? Ætla ekki allir að mæta??
Ég spá miklu fjöri og stórfenglegri skemmtun. Mér heyrist vera lagt miklu meira í lögin núna heldur en oft áður, og er þetta skemmtun sem "ENGINN" má missa af..... Jah... allavegana er ég bara spennt!

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim